Hálsmen í laginu eins og yfirvaraskegg, hannað og unnið í Iðnskólanum í Hafnarfirði haustið 2009. Seinna hafði ég samband við Krabbameinsfélagið um að selja hálsmenið á Mottumars og færi helmingur ágóðans til félagsins. Það var selt á nokkrum stöðum í Reykjavík í mars 2012 og var aftur selt í mars 2013. Umbúðir og útlit þeirra var gert í samstarfi við Ásu Bryndísi Gunnarsdóttur sem teiknaði andlitið og Sigrúnu Sæmundsen sem sá um grafík og umbrot umbúðanna. Verkið var fjármagnað með styrkjum frá fyrirtækjum og velunnurum. Ættingjar og vinir aðstoðuðu við samsetningu og umbúðun á vörunni eina helgi í febrúar 2012. Hægt er að lengja og minnka lengd hálsmenisins og leggja það upp undir nef þess sem það ber og er sá og hinn sami þar með kominn með yfirvaraskegg. Hugmyndin um að selja þetta til styrktar Mottumars átaki Krabbameinsfélagsins kom frá því að konur vildu oftar en ekki taka þátt í átakinu en gafst ekki tækifæri til vegna skorts á skeggvexti.
//
A necklace in the shape of a moustache, designed and made while studying in Iðnskólinn í Hafnarfirði in the fall of 2009. Later I contacted the Icelandic Cancer Society about selling the necklace for Mottumars or Moustachemarch (similar to Movember) and half of the profits was donated to the cancer society. It was sold at selected stores in reykjavík, iceland in march of 2012 and were sold again in march of 2013. Packaging and appearance were made in collaboration with Ása Bryndís Gunnarsdóttir who drew the face and Sigrún Sæmundsen who did the graphics and layout of the packaging. The project was funded with grants from a few companies and well-wishers. Family and friends helped with the products assembly and packaging during one weekend in february of 2012. It is possible to change the length of the string of the necklace and thus place it under your nose as if you are sporting a moustache. The idea behind selling the necklace to aid the Icelandic Cancer Society during Mottumars came from the fact that women wanted to take part in the campaign but could not because of their lack of beard growth.